fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Indversk flugvél sendi út neyðarkall – Var að verða eldsneytislaus

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 03:08

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugstjóri flugs 6764 frá IndiGo sendi út neyðarkall síðdegis á fimmtudag í síðustu viku því vélin var að verða eldsneytislaus. Vélin tók á loft frá Guwahati í Assam-ríki og var áfangastaðurinn Chennai í Tamil Nadu-ríki. Þar átti hún að lenda eftir þriggja klukkustunda flug.

Samkvæmt fréttum sumra indverskra fjölmiðla þá fékk flugstjórinn ekki heimild til að lenda í Chennai vegna mikillar flugumferðar um völlinn en aðrir miðlar halda því fram að slæmt veður hafi verið ástæðan.

En hvað sem því líður, þá var vélinn beint til Bengaluru í Karnataka-ríki. Sá flugvöllur er um 300 km frá Chennai.

Á leiðinni þangað sendi flugstjórinn út neyðarkall því eldsneytið var að verða búið. Fékk vélin forgang til lendingar í Bengaluru og lenti þar heilu og höldnu á áætluðum tíma. 168 farþegar voru um borð.

Eldsneyti var dælt á vélina í Bengaluru og var henni síðan flogið til Chennai.

Mikil umræða hefur verið um flugöryggismál í Indlandi síðustu vikur í kjölfar flugslyssins hörmulega í Ahmedabad fyrr í mánuðinu. Þá létust 270 manns, bæði á jörðu niðri og farþegar og áhöfn flugvélar frá Air India, þegar vélin hrapaði skömmu eftir flugtak.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins

Óttast að tugir hafi verið myrtir og líkunum varpað í eitt stærsta stöðuvatn landsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rolex-málið og systurnar

Rolex-málið og systurnar