
Heimavarnaráðherra Bandaríkjanna lenti í neyðarlegu atviki í gær þar sem hún sat fyrir svörum í þinghúsinu eftir að hún var beðin um að svara því hversu mörgum uppgjafahermönnum ráðuneyti hennar hefði brottvísað frá landinu.
Spurningin kom frá þingmanni demókrata, Seth Magaziner. Ráðherrann, Kristi Noem, svaraði af öryggi að ráðuneyti hennar hefði engum uppgjafahermanni brottvísað. Magaziner sagði tilkynnti ráðherranum þá að næsti gestur þingsins, mættur í gegnum fjarfundarbúnað, væri uppgjafahermaður að nafni Sae Joon Park.
Hann hlaut purpurahjarta-orðuna virtu eftir að hann var skotinn tvisvar í störfum sínum fyrir bandaríska herinn í Panama árið 1989. Ríkisstjórn Trump hefur nú brottvísað honum til Kóreu, en hann hefur ekki verið búsettur þar síðan hann var 7 ára gamall. Magaziner útskýrði:
„Eins og margir uppgjafahermenn hefur hann glímt við áfallastreituröskun og fíkn eftir herþjónustu sína. Hann var handtekinn á tíunda áratug síðustu aldar fyrir smábrot. Hann hefur aldrei skaðað nokkurn nema sjálfan sig og hann hefur verið edrú í 14 ár.“
Magaziner spurði svo hvort ráðherrann vildi ekki þakka Joon Park fyrir þær fórnir sem hann færði fyrir Bandaríkin.
„Ég er þakklát öllum sem hafa þjónað landi okkar og farið eftir lögum okkar,“ sagði Noem. Hún lofaði svo að taka mál uppgjafahermannsins til skoðunar. Magaziner benti svo á annan uppgjafahermann, Jim Brown, sem sat í þingsalnum fyrir aftan ráðherrann. Brown er giftur írskri konu sem hefur búið í Bandaríkjunum í næstum hálfa öld en hún var nýlega handtekin og á yfir höfði sér brottvísun. Það eina sem hún hefur gerst sek um er að skrifa tvær ávísanir fyrir nokkrum árum sem ekki var innistæða fyrir, ávísanirnar voru samanlagt upp á um 10 þúsund krónur.
Talsmaður ráðuneytisins reyndi síðar að koma ráðherranum til varna og sakaði Magaziner um að hafa vanrækt að upplýsa þingheim um að Joon Park væri á sakaskrá. Sú yfirlýsing hjálpaði lítið þar sem þingmaðurinn tók skýrt fram í þingsal að uppgafahermaðurinn hefði komist í kast við lögin vegna fíknar og áfallastreitu eftir herþjónustu sína.
Orðaskiptin hafa vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum. Einn skrifar: „Þetta er ástæðan fyrir því að repúblikanar óttast eftirlit, sannleikurinn þarf engar ræður, bara hljóðnema.“
MAGAZINER: How many veterans have you deported?
NOEM: We haven’t deported veterans.
MAGAZINER: Great. Then let’s bring in our next guest, a U.S. combat veteran you deported to Korea.
Silence. Whole hearing shifts. Receipts hit the table.
This is why Republicans fear… pic.twitter.com/qDFAO5HHWP
— Brian Allen (@allenanalysis) December 11, 2025
Secretary Noem tried to tell me that she hasn’t deported any veterans. I introduced her to one. pic.twitter.com/VcLMNHPW9f
— Congressman Seth Magaziner (@Rep_Magaziner) December 11, 2025
Eins vakti það athygli þegar ráðherrann sat fyrir svörum þingmannsins Daniel Goldman. Hann bað ráðherrann um að staðfesta að það sé ólöglegt að brottvísa flóttamönnum sem eru enn með virkar hælisumsóknir. Í stað þess að svara beint reyndi Noem að snúa út úr. Hún nefndi Joe Biden, fyrrum Bandaríkjaforseta, og að hann hafi hleypt alltof mörgum flóttamönnum inn í landið. Goldman benti á að hann væri ekki að spyrja um Biden eða verk fyrri stjórnar. Hann væri að spyrja einfaldra spurninga um hvort það væri ekki rétt skilið hjá honum að það sé ólöglegt að brottvísa hælisleitendum áður en umsókn þeirra hefur hlotið afgreiðslu.
„Ég bið um að fá orðið aftur. Hún er ekki að svara spurningunni.“
Öll spjót andstöðunnar beindust að ráðherranum í gær. Þingmaðurinn Shri Thanedar sakaði hana beinum orðum um að ljúga því að ráðuneyti hennar fari að lögum í einu og öllu. Dæmin sýni að lög hafi verið þvertbrotin í framgöngu útlendingastofnunarinnar ICE gegn innflytjendum, hælisleitendum og í sumum tilvikum bandarískum ríkisborgurum.
Ráðherrann tilkynnti svo óvænt að hún yrði að yfirgefa þingfundinn snemma til að mæta á fund. Netverjar telja að þetta hafi verið fyrirsláttur, ráðherrann hafi hreinlega verið svo niðurlægður að hann flúði. Miðillinn MeidasTouch staðfesti síðar að Noem þurfti ekki að mæta á neinn fund.
🚨BREAKING: Rep. Dan Goldman just OBLITERATED Secretary Noem on live TV when he walked her right in a trap:
if immigrants with active asylum cases are here legally – isn’t deporting them is AGAINST the law? She couldn’t answer.
See you at your 2029 criminal trial, Kristi. pic.twitter.com/cylr2LSgo9
— CALL TO ACTIVISM (@CalltoActivism) December 11, 2025
Holy fuck, Kristi Noem got annihilated by Rep. Dan Goldman and I’m here for every second of it .🔥🔥
By the way, if I were to call Noem a “Gestapo Cunt” would that make me a bad person, or does it just boost my follower count? pic.twitter.com/LcrUNKkc0e— Canada Hates Trump (@AntiTrumpCanada) December 11, 2025
BREAKING: Kristi Noem REFUSES THREE TIMES to state whether she’s breaking the law or not when Rep. Dan Goldman asks.
Instead, she brings up Biden..
YES SHE’S BREAKING THE LAW. pic.twitter.com/h9UgD3c0Y3
— Brian Krassenstein (@krassenstein) December 11, 2025
Thanedar to Noem: „You lied to me under oath“ pic.twitter.com/1GHWaWswpN
— Aaron Rupar (@atrupar) December 11, 2025
Rep. Ramirez: “Secretary Noem…you lied to the American people…You lied on the record, and you lied to members of this committee.” pic.twitter.com/39bzrx7aNg
— The Bulwark (@BulwarkOnline) December 11, 2025
Hillary Clinton sat through 11 hours of a witch hunt commitee hearing with no bathroom breaks. Kristi Noem couldn’t even make it 2 hours before cowardly running away to attend a fake meeting.
In a world of Kristi Noems, be a Hillary Clinton. pic.twitter.com/7jVCUwgcQr
— Protect Kamala Harris ✊ (@DisavowTrump20) December 11, 2025
Kristi Noem lied to congress so she could leave a hearing and avoid tough questions but of course had time for selfies pic.twitter.com/c0YMCgDujS https://t.co/9BwxNncDOY
— Wu Tang is for the Children (@WUTangKids) December 11, 2025