fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
Pressan

Borgarstjórasonur í Vínarborg trúði röngum aðila fyrir upplýsingum um auðæfi fjölskyldunnar – Myrtur í hrottalegu ráni

Pressan
Laugardaginn 6. desember 2025 21:30

Danilo Kuzmin

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og eins árs gamall háskólanemi, Danilo Kuzmin, var á dögunum myrtur með hrottalegum í hætti í í Vínarborg. Talið er að Kuzmin, sem er sonur Sergey Kuzmin borgarstjóra úkraínsku borgarinnar Kharkiv, hafi orðið fyrir barðinu á samviskulausum ræningjum sem ásældust rafmyntir í eigu Kuzmin-feðganna.

Kuzmin var boðaður á bílaplan lúxushótelsins Sofitel í austurrísku höfuðborginni en þar er talið að ræningjarnir tveir, sem einnig voru frá Úkraínu, hafi ráðist á hann, troðið honum inn í bifreið og pyntað hann hrottalega. Tilgangurinn var sagður sá að reyna að fá Kuzmin yngri til að gefa upp lykilorð að rafmyntareikningum feðganna.

Háskólanemanum var misþyrmt hrottalega í baksæti bílsins allt þar til að ræningjarnir komust yfir lykilorð tveggja reikninga. Þá var keyrt með Kuzmin, sem var illa farinn eftir barsmíðarnar, á annan stað í borginni, svokallað Donaustadt-hverfi, en þar kveiktu ræningjarnir í bifreiðinni með piltinn læstan inni. Lést hann í eldsvoðanum en hann hlaut brunasár á um 80% líkama síns.

Lögregluyfirvöld í Austurríki hefur haft hendur í hári tveggja manna vegna ódæðisins en þeir eru sagðir 45 og 19 ára gamlir. Sá yngri er sagður hafa gengið í sama háskóla og Kuzmin og kynnst honum þar. Talið er að hugmyndin að ráninu hafi kviknað þegar Kuzmin tjáði sig fjálglega um það að hann og faðir hans ættu talsvert af peningum í rafmyntum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Drama í Davos – Baulað á viðskiptaráðherrann og forseti Seðlabanka Evrópu gekk út

Drama í Davos – Baulað á viðskiptaráðherrann og forseti Seðlabanka Evrópu gekk út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Grátklökkur Harry segir konunglegt líf eiginkonunnar hafa verið algjör eymd

Grátklökkur Harry segir konunglegt líf eiginkonunnar hafa verið algjör eymd
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandarískur þingmaður vill opinbera aftöku á grunuðum morðingja

Bandarískur þingmaður vill opinbera aftöku á grunuðum morðingja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Deadpool-morðinginn“ myrti tvær konur – Lýsti hrottalegum morðunum í símtali við föður sinn

„Deadpool-morðinginn“ myrti tvær konur – Lýsti hrottalegum morðunum í símtali við föður sinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kona sökuð um kynferðislega áreitni í lest

Kona sökuð um kynferðislega áreitni í lest
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump-tollarnir bitna nánast alfarið á Bandaríkjamönnum samkvæmt nýrri rannsókn

Trump-tollarnir bitna nánast alfarið á Bandaríkjamönnum samkvæmt nýrri rannsókn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Smábærinn sem Pútín gæti notað sem afsökun til að ráðast á NATO

Smábærinn sem Pútín gæti notað sem afsökun til að ráðast á NATO
Pressan
Fyrir 4 dögum

Auðkýfingar 4000 sinnum líklegri til að gegna pólitískum valdastöðum

Auðkýfingar 4000 sinnum líklegri til að gegna pólitískum valdastöðum