fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
Pressan

Hótelnótt Kevin væri fokdýr í dag

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 9. desember 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný sundurliðun sýnir hversu dýrt ævintýri Kevins McCallister á Plaza Hotel í kvikmyndinni Home Alone 2 yrði árið 2025. Í grein New York Post segir að verðbólga hafi aukist svo ótrúlega mikið síðustu þrjá áratugi síðan myndin kom út að eftirminnilega eftirréttarveislan hjá Kevin sem kostaði 1.000 dali líti út eins og smáaurar miðað við verðmiðann í dag.

„Kevin, eyddirðu 967 dollurum í herbergisþjónustu?“ öskrar faðirinn  Peter McCallister í lokasenunni myndarinnar frá 1992, svo reiður að rödd hans ómar um Central Park.

Plaza hótelið.

Í dag myndi máltíðin ein og sér kosta meira en öll ferð Kevins til New York árið 1992. Heildarkostnaðurinn hækkar úr 2.109 dölum árið 1992 í 8.511 dali í dag, framreiknað miðað við verðbólgu og hækkandi kostnað við gistingu. Ótrúleg dvöl Kevins í New York myndi kosta yfir 300% meira nú en hún gerði snemma á tíunda áratugnum.

Stærsti kostnaðurinn væri fyrir sjálfa Plaza-svítuna, sem kostar að meðaltali 6.244 dali á nótt, þó að til séu svítur sem kosta allt að 33.000 dali,  herbergisþjónustan, sem felur meðal annars í sér 16 kúlur af ís, meira en tvöfaldast í 2.233 dali og ísinn nær 24 dölum. Hótelið glæsilega hefur fylgt hækkandi framfærslukostnaði, samkvæmt greiningu frá ferðatryggingasamanburðarþjónustunni iSelect.

Í kvikmyndinni þegar hótelið var í eigu Donald Trump hefði herbergið kostað að meðaltali 1.100 dali hver nótt. Einfaldur þriggja kúla ísbolli með maraschino-kirsuberjum, M&M’s og súkkulaðisósu úr eldhúsi hótelsins myndi kosta 24 dali í dag, samanborið við 18 dali hjá Kevin.

Hótelið býður í dag upp á „Home Alone Sundae“ sem heiður til myndarinnar, að upphæð 350 dalir.

Fjórföld heildaraukning ætti ekki að koma á óvart þar sem Bandaríkin glíma við verðbólgu og almennan fjárhagsvanda. Atvinnuleysið fór upp í 4,4% í september, nýjasta mánuðinum sem gögn eru tiltæk fyrir, það hæsta frá október 2021. Tekjur eru hins vegar að aukast lítillega og eru nálægt því sem var í efnahagslægðinni árið 2008.

Þetta er áhugaverð áminning um að það sem leit út fyrir að vera fáránlegur lúxus þá væri á færi fárra í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Drama í Davos – Baulað á viðskiptaráðherrann og forseti Seðlabanka Evrópu gekk út

Drama í Davos – Baulað á viðskiptaráðherrann og forseti Seðlabanka Evrópu gekk út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Grátklökkur Harry segir konunglegt líf eiginkonunnar hafa verið algjör eymd

Grátklökkur Harry segir konunglegt líf eiginkonunnar hafa verið algjör eymd
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandarískur þingmaður vill opinbera aftöku á grunuðum morðingja

Bandarískur þingmaður vill opinbera aftöku á grunuðum morðingja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Deadpool-morðinginn“ myrti tvær konur – Lýsti hrottalegum morðunum í símtali við föður sinn

„Deadpool-morðinginn“ myrti tvær konur – Lýsti hrottalegum morðunum í símtali við föður sinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kona sökuð um kynferðislega áreitni í lest

Kona sökuð um kynferðislega áreitni í lest
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump-tollarnir bitna nánast alfarið á Bandaríkjamönnum samkvæmt nýrri rannsókn

Trump-tollarnir bitna nánast alfarið á Bandaríkjamönnum samkvæmt nýrri rannsókn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Smábærinn sem Pútín gæti notað sem afsökun til að ráðast á NATO

Smábærinn sem Pútín gæti notað sem afsökun til að ráðast á NATO
Pressan
Fyrir 4 dögum

Auðkýfingar 4000 sinnum líklegri til að gegna pólitískum valdastöðum

Auðkýfingar 4000 sinnum líklegri til að gegna pólitískum valdastöðum