
Rétt fyrir miðnætti þann 7. desember síðastliðinn ákváðu Mark og eiginkona hans að panta sér mat frá Arby‘s í gegnum heimsendingarfyrirtækið DoorDash.
Það tók hjónin ekki langan tíma að átta sig á því að eitthvað bogið var við matinn.
„Ég tók eftir því að konan mín byrjaði skyndilega að hósta og lét eins og hún væri að kafna. Eftir að hafa tekið tvo bita af matnum þá kastaði hún upp,“ segir Mark sem segist hafa tekið eftir því að einhvers konar efni var á pokanum sem maturinn kom í.
„Það var augljóst að það hafði verið átt við pokann þannig að ég kíkti á upptökuna úr Ring-dyrabjöllunni og þá sá ég að konan sem kom með matinn virðist hafa úðað einhverju efni yfir hann áður en hún skildi hann eftir,“ segir hann.
„Við gerum ráð fyrir að þetta hafi verið piparúði en þetta gæti hafa verið hvaða efni sem er. Rottueitur eða fentanýl, þess vegna. Konan mín gæti auðveldlega verið dáin núna,“ bætir hann við.
Mark setti sig strax í samband við lögreglu og forsvarsmenn DoorDash, en enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn vegna málsins.
Hann segir að DoorDash hafi endurgreitt honum það sem hann greiddi fyrir matinn en að öðru leyti hafi fyrirtækið ekki virst taka málið mjög alvarlega.
Mark segist eiga erfitt með að átta sig á því hvers vegna einhver tekur upp á því að framkvæma svona illverk. Hann segist aldrei hafa séð þessa tilteknu konu áður og þá hafi þau greitt henni þjórfé fyrir þjónustuna.