Forseti samtakanna, Pedro Fiol, sagði að samtökin verði að íhuga hvort þau geti haldið sama verðlagi áfram. Hann sagði að ferðamönnum muni fjölga nú í sumar því þrátt fyrir að ferðamönnum fækki frá ákveðnum löndum, þá fjölgi þeim frá öðrum.
Hann sagði að þeim ferðamönnum fari fjölgandi sem séu reiðubúnir til að greiða hærra verð fyrir gæði og benti um leið á ákveðna mótsögn sem felst í, oft ólöglegum, tilboðum fyrir þá sem ráða ekki við hækkandi verðlag en vilja ekki sleppa því að fara í frí á Mallorca.
„Við erum að tala um ferðamenn sem koma með minna ráðstöfunarfé, sérstaklega ef samdráttur er í löndunum þeirra, eins og í þessu tilfelli Þýskalandi,“ sagði hann.
Hann sagði að þrátt fyrir að Þýskaland sé aðalmarkaðurinn og að bókanastaða sumarsins sé góð, þá hafi þýskum ferðamönnum fækkað nokkra mánuði í röð miðað við sama tíma á síðasta ári.