fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Pressan

Karlmaður glímir við gríðarlega sjaldgæft ofnæmi – Er með ofnæmi fyrir eigin fullnægingum

Pressan
Föstudaginn 27. júní 2025 03:15

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta hljómar eins og lélegur brandari en er engu að síður satt. 22 ára ísraelskur karlmaður  glímir við þann grimma raunveruleika að í hvert sinn sem hann fær fullnægingu, fær hann mjög öflug ofnæmisviðbrögð.

Þessi sjaldgæfi sjúkdómur leggst á 1 af hverjum 100 milljónum. Sjúkdómurinn hefur haft mjög neikvð áhrif á líf mannsins en nú sér hann ljósið við enda gangnanna.

Sjúkdómurinn nefnist „post-orgasmic illness syndrome (POIS)“. Talið er að orsökin fyrir honum sé vegna viðbragða við prótíni sem ónæmiskerfið losar um þegar fullnægingu er náð.

Allt frá því að hann var 14 ára hefur maðurinn glímt við óþægileg sjúkdómseinkenni eftir fullnægingu, skiptir þá engu hvort hún á sér stað í samförum, við sjálfsfróun eða bara þegar hann dreymir blauta drauma.

Meðal sjúkdómseinkenna eru:

Gríðarleg þreyta

Vöðvaverki

Vot augu.

Aðeins er vitað um 50 svona tilfelli á heimsvísu.

Sjúkdómseinkennin hafa gert manninum ókleift að stunda venjulegt ástarlíf og hann hefur glímt við þunglyndi og kvíða.

Hann gafst upp á endanum og leitaði til lækna og það reyndist vera snjallt. Hann greindist með POIS og var boðið upp á lyfið omalizumab, sem er enn á tilraunastigi, en því er sprautað í fólk. Lyfið er venjulega notað við astma, ofnæmi og langvinnum ofsakláða.

Það er einn stór galli við omalizumab, lyfið getur dregið úr kynhvötinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjöldi ríkra Bandaríkjamanna sækir um „gyllta vegabréfsáritun“ á Nýja-Sjálandi

Fjöldi ríkra Bandaríkjamanna sækir um „gyllta vegabréfsáritun“ á Nýja-Sjálandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndu að setja brúðkaup á svið í Disneylandi – Starfsmenn hringdu í lögregluna þegar þeir sáu brúðina

Reyndu að setja brúðkaup á svið í Disneylandi – Starfsmenn hringdu í lögregluna þegar þeir sáu brúðina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum

Mikið drama hjá Heineken – Misstu yfirráðin yfir brugghúsum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna