fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Kjartan Páll lenti í fangelsi í Egyptalandi – „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 28. júní 2025 12:00

Kjartan Páll Sveinsson. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Páll Sveinsson, formaður félags strandveiðimanna, var í heimsreisu þegar hann lenti i fangelsi í Egyptalandi. Kjartan Páll ræðir fangelsisvistina og aðdragandann að henni í viðtali í Sjókastinu.

„Vegabréfinu mínu var stolið í Egyptalandi og ég þurfti sem sagt að fá nýtt sent frá Íslandi. Og það tók nú svolítinn tíma. Þetta var 2001 og og internetið var bara ungabarn á þessum tíma,“ segir Kjartan Páll sem var þá 23 ára gamall.

Segist hann hafa passað sig á að spyrja lögregluna hvort að glænýtt vegabréf yrði eitthvað mál, en í því var enginn stimpill inn í landið.

„Þeir segja nei nei og skrifa þarna einhverja skýrslu fyrir mig á arabísku sem ég gat ekkert lesið sjálfur, vissi ekkert hvað stóð í henni. Og svo ætlaði ég að taka sem sagt bátinn yfir frá Egyptalandi frá Sínaískaganum og yfir til Jórdaníu. Og þá er landamæravörðurinn, hann bara skoðar vegabréfið og segir: „Heyrðu, þú ert ekki með neinn stimpil inn í landið.“ Þannig að ég læt hann fá bréfið og hann segir: „Þetta meikar ekkert sens.“

Kjartan Páll segist ekki hafa hugmynd um hvað stóð í bréfi lögreglunnar, þar hefði alveg eins getað verið uppskrift að kjúklingarétti. Hann lýsti því fyrir landamæraverðinum hvernig hann komst inn í landið og öryggisvörðurinn hringdi í sendiráðið þar sem lágu fyrir gögn um að Kjartan Páll hefði fengið stimpil. Öryggisvörðurinn var þó ekki sannfærður.

„Hann segir: „Ég held að þetta sé bara ekki rétt. Ég held að þú hafir selt vegabréfið þitt í Súdan og komið gangandi inn í Egyptaland.“ Þetta heitir fjörutíu daga leiðin vegna þess að þú ert fjörutíu daga að fara þarna á kameldýrum. Þannig að mér var stungið þarna í fangelsi og það var ekki ekki skemmtileg lífsreynsla.“

Kjartan Páll mátti dúsa sólarhring í fangelsinu og segir að verðir hafi sífellt verið að koma inn og spyrja hann með vegabréfið.

„Og bara eftir 24 klukkutíma þá sagði ég bara: „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“

Kjartan Páll fékk þau svör að hann yrði þá sendur úr landi. „Ég sagði: „Já, heyrðu, þá bara gerðist þetta svona. Þannig að ég er víst kominn á einhvern svartan lista og má aldrei fara til Egyptalands aftur.“

Aðspurður um hvort hann hafi ekki verið hræddur svarar Kjartan Páll:

„Jú, ég var skíthræddur og egypsk fangelsi er ekkert skemmtilegt. Maður heyrði svona alls kyns hljóð sem að var greinilega líkamar að hérna slengjast utan í einhverja harða hluti. Öskur og óp og svona.“

Enginn úr fjölskyldu eða vinahópi Kjartans Páls vissi af þessu meðan á stóð.

„Sem var eins gott vegna þess að mamma og pabbi voru alveg nógu áhyggjufull fyrir. Það var ekki fyrr en ég kom heim til Íslands sem ég sagði þeim frá þessu.“

Hlusta má á viðtalið við Kjartan Pál og önnur viðtöl Sjókastsins í heild sinni á YouTube og Spotify. 

Umræðan um fangelsisvistina hefst á mínútu 0:11:11.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

RÚV braut gegn siðareglum blaðamanna með ámælisverðum hætti í máli Ásthildar Lóu

RÚV braut gegn siðareglum blaðamanna með ámælisverðum hætti í máli Ásthildar Lóu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út

Telur að aðeins tvö lönd í heiminum séu örugg ef kjarnorkustyrjöld brýst út
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“

Skiptar skoðanir um hús eftir verðlaunaarkitekt – „Ég finn brunalykt við að horfa á það“