fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 5. júní 2025 13:15

Sæþór Benjamín Randalsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalista, virðist hafa staðið af sér storm sem skapaðist um meinta hegðun hans á stefnumótaforritinu Grindr. Það var þó ekki átakalaust því samkvæmt heimildum DV var talsvert tekist á um málið innanbúðar í flokknum. Þá sendu ungliðar á Norðurlandi frá sér ályktun þess efnis að nýi formaðurinn ætti að stíga til hliðar vegna málsins. Sú ályktun var hins vegar dreginn tilbaka samkvæmt heimildum eftir að hafa vakið nokkurn usla.

Eins og DV fjallaði um þann 27. maí síðastliðinn þá fóru skjáskot af meintum kynferðislegum samskiptum Sæþórs við ólögráða dreng í dreifingu í kjölfar þess að hans fólk vann kosningasigur á aðalfundi Sósíalistaflokksins nokkrum dögum fyrr.

Sæþór steig í kjölfarið fram, sagði skjáskotin fölsuð og tilgangurinn væri sá að koma pólitísku höggi á hann. Síðar kærði hann dreifingu skjáskotanna til lögreglu.

Margir draga þó þessar skýringar í efa í ljósi þess að skjáskotin fóru fyrst í dreifingu á umdeildri Telegram-síðu, sem tengist tálbeituhópum, í mars á þessu ári. Framboð Sæþórs var vel þekkt og því hefur verið bent á að ef tilgangurinn væri sá að veita honum pólitískt högg þá hefði verið vænlegra til árangurs að birta slíkt fyrir aðalfund en ekki eftir hann.

Opinberun málsins olli þó nokkrum titringi bak við tjöldin hjá sósíalistum og varð talsverð umræða um að Sæþór ætti að stíga til hliðar á meðan málið yrði skoðað og öll kurl væru komin til grafar. Þá treysti framkvæmdastjórn sér ekki til að senda frá sér opinbera stuðningsyfirlýsingu til handa Sæþóri.

Einharðastir í þeirri afstöðu að Sæþór ætti að stíga til hliðar voru liðsmenn Dögunar- félags ungra sósíalista á Norðurlandi en sá félagskapur var stofnaður í marslok á þessu ári og eru forsvarsmenn hans vel tengdir inn í þann hóp sem nú stýrir för hjá Sósíalistum. Þannig voru þrír í stjórn Dögunar kosnir í hinar ýmsu stjórnir flokksins á nýliðnum aðalfundi.

Samkvæmt heimildum DV sendi Dögun ályktun til framkvæmdastjórnar flokksins þar sem farið var fram á að Sæþór myndi stíga til hliðar. Ályktunin féll í grýttan jarðveg og herma sömu heimildir að ályktunin hafi verið dregin tilbaka nokkru síðar.

DV bar málið undir Elvar Fossdal, formann Dögunar sem einnig situr í málaefnastjórn flokksins, en hann kaus að tjá sig ekki. „Við höfum samþykkt það okkar á milli, löngu áður en þetta mál kom upp  að við munum ekki ræða slíkt opinberlega,“ sagði Elvar í stuttu samtali.

Að endingu var niðurstaðan sú að Sæþór myndi sitja sem fastast en hermt er að lítið meira þurfi að koma uppá til þess að formannstíð hans verði stutt.

Uppfært kl.15.53: Í kjölfar birtingu fréttarinnar hafði Elvar Fossdal samband og sagði það misskilning að ályktun Dögunar hefði verið dregin tilbaka.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn