fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Pressan

Þess vegna kíkja flugáhafnir á skóna þína þegar þú gengur um borð

Pressan
Sunnudaginn 15. júní 2025 17:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þú gengur um borð í flugvél, þá heilsa áhafnarmeðlimirnir þér ekki bara því þeir virða þig fyrir sér af mikilli nákvæmni og hafa sérstakan áhuga á skónum sem þú ert í. Það er ekki af því að þeir vilja dæma þig út frá skónum.

Ástæðan er tengd öryggi. Áhafnarmeðlimirnir eru í fremstu víglínu ef neyðartilfelli kemur upp og þeir leggja mat á hvort farþegarnir eru í standi til að takast á við hugsanlega rýmingu vélarinnar. Skórnir, sem þú ert í, geta gert þér auðveldara, eða erfiðara, fyrir við að komast leiðar þinnar ef neyðarástand kemur upp.

Ef rýma þarf flugvél, þá þarf það að gerast á örskömmum tíma og hver sekúnda telur. Rangur skófatnaður, til dæmis stór stígvél, háir hælar eða sleipir sandalar geta seinkað hreyfingum, valdið því að fólk dettur eða verið öðrum farþegum til óþæginda. Og það sem er enn verra, rangur skófatnaður getur skemmt öryggisútbúnað.

Það er sérstaklega í tilfellum þar sem þarf að nota neyðarrennur, sem eru uppblásnar, sem háir hælar eða oddhvassir hlutir undir sólunum geta gert gat á rennurnar. Þess vegna er oft tekið fram í öryggisleiðbeiningum að ekki megi vera í háhæluðum skóm ef rýma þarf vélina í skyndingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Dularfulla Boeing 737 vélin sem stendur á miðjum akri – Enginn veit hvernig hún komst þangað

Dularfulla Boeing 737 vélin sem stendur á miðjum akri – Enginn veit hvernig hún komst þangað