Ein óvæntasta niðurstaðan snýst um það svæði heilans sem sér um minnið. Vísindamennirnir uppgötvuðu að eftir þriggja daga þögn jókst framleiðni nýrra heilafruma á svæðinu. Áður var talið að það þyrfti langvarandi þjálfun til að þetta gerðist.
Áhrifin voru enn meiri hjá fólki, sem þarf oft að þola hávaða, sem bendir til að þeir sem búa við mesta hávaðann og verða stressaðir af hans völdum, geti fengið mest út úr þögn. ABC News skýrir frá þessu.
Þögn hefur einnig áhrif á heilabylgjur og skiptir úr hröðum beta-bylgjum yfir í hægari alpha- og theta-bylgjur, sem tengjast ró, einbeitingu og sköpunargleði. Strax á þriðja degi náðu þátttakendurnir þessu stigi fyrr en áður.
Hvað varðar tilfinningar, þá voru áhrifin einnig töluverð eftir nokkurra daga þögn, voru samskipti tilfinningasvæða heilans mun áhrifaríkari sem gerði þátttakendurna betri í að uppgötva snemmbúin merki um tilfinningalegt álag og þeir brugðust skýrar við.
Þögn getur einnig bætt virkni skynfæranna. Þátttakendurnir sýndu merki um bætta sjón, bragð-, lyktar- og tilfinningaskyn.