fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. júní 2025 14:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bræðurnir Jón Kjartan Einarsson og Sindri Geir Ásgeirsson létust með 12 klukkustunda millibili þann 9. ágúst 2024 í sömu íbúð í Kópavogi. Jón Kjartan var 33 ára, fæddur 1990, og Sindri Geir var 27 ára, fæddur 1997.

Faðir þeirra Ásgeir Gíslason skipstjóri átti samtal við Sigmar Guðmundsson þingmann Viðreisnar og rakti hann sögu bræðranna sem vakti mikla athygli í fyrra.

„Þann 9. ágúst síðastliðinn fékk Ásgeir þá harmafregn að sonur hans, Jón Kjartan Einarsson, hefði látist í íbúð sinni í Kópavogi. Jón Kjartan hafði átt við vímuefnavanda að stríða og mátti rekja andlátið til ofskömmtunar efna. Jón Kjartan var fæddur árið 1990. Bróðir Jóns Kjartans, Sindri Geir Ásgeirsson sem fæddur er árið 1997, bjó með honum í íbúðinni í Kópavogi. Hann átti líka við vímuefnavanda að stríða. Eftir að lögregla og heilbrigðisstarfsmenn höfðu yfirgefið íbúðina eftir andlátið vildi Sindri dvelja þar áfram, þrátt fyrir að fjölskyldu hans hafi þótt heppilegra að hann gerði það ekki. Örfáum stundum síðar var fjölskylduna farið að undra að ekki náðist samband við Sindra Geir. Lögregla fór á vettvang og kom að Sindra látnum 12 klukkustundum eftir andlát bróður hans. Bræðurnir féllu frá vegna ofskömmtunar með 12 tíma millibili. Ekkert bendir til annars en að um óhapp, en ekki viljaverk, hafi verið að ræða, eins og allt of oft gerist með fólk sem glímir við þennan sjúkdóm. Þetta er ólýsanlegur harmur og erfitt fyrir okkur öll að ná utan um þetta. Forsagan er líka sársaukafull.“

Sjá einnig: Sigmar fékk átakanlegt símtal frá föður tveggja bræðra: Létust með tólf klukkustunda millibili – „Sagan sem hann bað mig um að segja er sorglegri en orð fá lýst“

Ásgeir segir í viðtali í Spjallinu við Frosta að hann og fjölskylda hans vonist til þess að þessi vofveiflegi atburður muni leiða til einhverrar alvöru umræða um þann faraldur ópíóðafíknar, og dauðsfalla tengdum honum, sem riðið hefur yfir íslenskt samfélag á undanförnum árum og að gripið verði til einhverra aðgerða til að sporna við þeirri dapurlegu þróun.

Ásgeir var staddur út á sjó á fyrsta degi veiða þegar hann fékk símtalið.

„Um morgun er hringt í mig að Jón Kjartan sé látinn og hvað hafi gerst. Ég er staddur norðarlega í Barentshafi, þannig að það er ekkert hlaupið í land, hvað þá hingað til Íslands, en það eru gerðar ráðstafanir að koma mér í land. Og það átti að vera þannig að ég væri kominn, sem sagt tveimur dögum seinna, með öðru skipi. Svo um kvöldið er hringt í mig aftur að bróðir hans Sindri væri farinn líka.“

Þá var hýft og skipið sigldi í næstu höfn til að koma Ásgeiri í land og næsta flug til Íslands.

„Sindri hafði slitið sambúð tveimur mánuðum áður og flytur inn til bróður síns á meðan hann er að bíða eftir að komast í meðferð. Og þegar hann slítur sambúð þá reynir hann að komast upp á Vog, en lendir í átta mánaða bið af því að hann hafði verið í meðferð innan við tveimur árum áður.“

Bræðurnir höfðu báðir leitað sér hjálpar vegna fíknar. Jón var í meðferð jólin áður og hélt sér edrú fram á vorið að sögn föður hans.

„Um morguninn þá kemur Sindri að hinum bara látnum í sófa. Orðinn blár og hann hringir náttúrulega á neyðarlínuna og reynir, það var náttúrulega löngu of seint.“

En hvernig gerist það svo að Sindri einhvern veginn fer þessa sömu leið? 

„Það er það sem eiginlega enginn skilur. Og það kemur náttúrulega lögreglan og kannar hvort eitthvað saknæmt sé, eins og gert er í þessum málum, og og hann vill enga hjálp. Sindri, hann vill ekkert tala við prest. Hann var nú ekki kristinn, hann lét ekki skíra sig og ferma, og sagðist vera heiðinn. Tryði á þetta gamla og hann neitar bara að fara úr íbúðinni. En það er fjarlægt allt sem að þau segja mér sem að ekki er og þau halda að sé keypt úr apóteki, sem fannst á staðnum, sem var ekkert mikið. En hann verður áfram í íbúðinni og vill bara ekkert. Og er farið að undrast um hann þegar líður á daginn að hann svarar ekki neinum. Systir hans reyndi að telja honum hughvarf. Hann hafði ekkert að gera þarna.“

Segir Ásgeir að fjölskyldan hefði viljað koma Sindra annað og þá hvert sem er, en hann hafi viljað vera kyrr í íbúðinni.

„Og svo þegar er farið inn um kvöldið, að þá er hann bara sofandi uppi í rúmi. Þannig var komið að honum. Það þýddi ekkert að að reyna að vekja hann, það var ekki hægt. Það var of langt liðið. Það kemur fram í krufningarskýrslum, magnið var ekki það mikið að ef hann hefði verið í neyslu, hann hafði bara ekkert mótvægi. Hann var að reyna að taka sig á til að geta hitt börnin sín. Hann skildi eftir tvö ung börn.“

Ásgeir segir að um hafi verið að ræða lyfjaeitrun út frá krossverkun þriggja lyfja. „Og þar af er eitt þeirra eitthvað ópíóíða sem við vitum að er ekki keypt í apóteki. Í rauninni veit kannski enginn hvaða efni eru í því.“

Aðspurður um hvernig tilfinning það var að fá þessi tíðindi gegnum símann úti á sjó segir Ásgeir ekki hægt að lýsa því.

„Og kannski best að það sé ekki hægt því að í rauninni á þetta ekki að þurfa að gerast þannig að neinn þurfi að upplifa það. Og maður er búinn að lenda í því að fólk er ekki að skilja. Og maður veit ekkert við hvern á að tala þegar maður er búinn að lenda í því oftar en einu sinni að þurfa að hugga prest. Og þá getur maður ekki ætlast til þess að neinn sem ekki hefur upplifað svona bara skilji mann. 

Og þá sér maður einu leiðina. Hrista svolítið upp í, láta fólk vita, sjokkera svolítið samfélagið til að, það er náttúrulega eitthvað sem er að.“

Segir Ásgeir að hann og hans fjölskylda vilji að andlát bræðranna leiði til breytinga. 

„Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum. Það er of seint að bjarga þeim. Af því að staðan er þannig. Raunin er að við erum ekki fórnarlömbin. Það eru þeir sem dóu og þeir sem eru úti í samfélaginu og eiga eftir að lenda í því sama. Þar eru fórnarlömbin sem við viljum bara gera allt sem við getum til að bjarga.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt