fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Pressan

Kona kveikti í vini sínum út af karlrembubrandara – Sagði henni að halda sig í eldhúsinu og var í kjölfarið haldið sofandi í 8 daga á gjörgæslu

Pressan
Laugardaginn 17. maí 2025 13:59

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin 24 ára gamla Corbie Jean Walpole svarar nú til saka í Albury í Ástralíu eftir að hún hellti bensíni yfir vin sinn til margra ára og kveikti í honum. Walpole hefur játað sök en útskýrði í dómsal að hún hafi misst stjórn á sér eftir að vinur hennar kom með óviðeigandi ummæli.

Þau voru úti að skemmta sér í janúar á síðasta ári og komin vel í glas. Þá fór vinur hennar, Jake Loader, að vera með drykkjudólg. Hann reyndi að fá Walpole til að glíma við sig og reyndi að vekja sofandi unnusta hennar, svo dæmi séu nefnd.

Botninn tók svo úr þegar Loader sagði vinkonu sinni að „halda sig við eldhúsið að baka skonsur“ frekar en að vera úti að djamma með strákunum.

Eftir þetta fór Walpole inn í bílskúr og sneri aftur með fimm lítra könnu af bensíni sem hún hellti yfir vin sinn. Svo fór hún að veifa kveikjaranum sínum með ögrandi hætti.

Vinur hennar trúði því ekki að hún myndi meiða hann svo hann ögraði henni og sagði: „Koma svo, gerðu það“, en þá einmitt gerði hún það.

Loader hlaut við þetta bruna á 55% líkamans og þurfti að halda honum sofandi í átta daga. Eftir það dvaldi hann alls í 74 daga á brunadeild sjúkrahússins í Melbourne þar sem hann þurfti að fara í 10 aðgerðir.

Walpole segir í dag að hún sjái eftir þessu öllu saman. Hún hafi ekki verið á góðum stað í lífinu þegar þetta gerðist og var farin að misnota áfengi og fíkniefni.

„Ég myndi gera allt til að geta spólað til baka,“ sagði Walpole á meðan vinur hennar getur ekki lengur farið út í sólina með bera húð og getur ekki svitnað þar sem svitakirtlar hans brunnu af.

DailyMail greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fékk þungan dóm eftir ólýsanlegan harmleik í barnaafmæli

Fékk þungan dóm eftir ólýsanlegan harmleik í barnaafmæli
Pressan
Í gær

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stjórn Trump íhugar að afnema grundvallarréttindi

Stjórn Trump íhugar að afnema grundvallarréttindi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hér geta reykingar, kynlíf og áfengi kostað ferðamenn stórfé í sektir

Hér geta reykingar, kynlíf og áfengi kostað ferðamenn stórfé í sektir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reyndu að ræna dóttur og barnabarni rafmyntakóngs

Reyndu að ræna dóttur og barnabarni rafmyntakóngs
Pressan
Fyrir 3 dögum

Unglingur spurði þingmann hvers vegna Trump væri svona appelsínugulur – svarið hefur vakið athygli

Unglingur spurði þingmann hvers vegna Trump væri svona appelsínugulur – svarið hefur vakið athygli