fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Slys sem kostaði fjóra unga menn í Vestmannaeyjum lífið – Hetjudáð Guðlaugs – Forréttindi að fá að hitta börnin sín

32 ár frá Helliseyjarslysinu Hættulegasta starf í heimi – Forréttindi að fá að hitta börnin sín

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 11. mars 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í dag eru 32 frá hinu hræðilega Helliseyjarslysi. Það var að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00 að Hellisey VE 503 sökk hér fyrir austan Heimaey. Þetta slys kostaði 4 unga menn lífið en sá fimmti, Guðlaugur Friðþórsson vann það ótrúlega afrek að bjarga sér á sundi í 5 – 6 tíma í ísköldum vetrarsjónum,“ þetta skrifar Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um Helliseyjarslysið og önnur skelfileg sjóslys í Eyjum.

Elliði bætir við að nánast hver einasta fjölskylda í Vestmannaeyjum hafi í gegnum tíðina verið rúnum rist vegna slíkra hörmunga að missa nákominn ættingja eða góðan vin.

„Þannig átti amma til dæmis 5 bræður, fjórir þeirra drukknuðu hér við Vestmannaeyjar. Ég hef oft hugsað til þess hvernig það hafi verið fyrir Tóta frænda að lifa einn eftir af þeim bræðrum.“

Líkt og segir að ofan eru 32 ár frá því að Hellisey sökk. Á vef Eyjafrétta segir að með skipinu fórust fjórir menn, allir ungur. Þeir hétu Hjörtur R. Jónsson, skipstjóri 25 ára, Pétur Sigurðsson, 1. vélstjóri, 21. árs, Engilbert Eiðsson, 2. vélstjóri, 19 ára og Valur Smári Geirsson, 26 ára. Guðlaugur, þá aðeins 22 ára synti sex kílómetra í land líkt og löngu er orðið frægt. Gekk hann eftir erfiða landtöku yfir úfið hraun. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Guðlaugur:

„Við töluðum mikið saman á kili og ég sagði si svona: „Jæja, þetta þurfti þá að enda svona. Maður heldur alltaf að einhver annar lendi í því, einhver annar maður, einhver annar bátur. Svona er það líka í landi, en svo allt í einu er stundin runnin upp.“ Við sátum frammi á kili og var skipið þá mikið til komið í kaf að aftan. Mér verður þá að orði: „Ef Guð er til ætti hann að hjálpa manni, nú þarf maður á því að halda.“ Undarlegt er þetta, og oft hefur maður efast um það að Guð væri til og jafnvel hæðst að því á ákveðnum aldri, eins og gengur.

Hjörtur skipstjóri sagði þá að við skyldum fara með bænina Faðir vor og við gerðum það þrír saman og reyndum að hughreysta hver annan. Hirti var mjög kalt, því hann hafði misst skó og sokka af sér, og ég lánaði honum stígvélin mín, því ég var sjálfur í ullarsokkum. Það var kalt þarna á kili.“

Baltasar Kormákur gerði síðar kvikmynd um slysið, mynd sem Guðlaugur var ósáttur við og sagði að Egill Skallagrímsson hefði þó fengið að drepast áður en um hann var skrifuð saga.

Elliði fjallar svo um aðrar þrekraunir sem íbúar í Eyjum hafa gengið í gegnum. Segir bæjarstjórinn að upp úr standi „Útilegan mikla“ eins og áhlaupið 25. og 26. febrúar 1869 var kallað.“

Elliði bætir við:

„Þá skall skyndilega á óveður hið versta þegar öll skip voru farin á sjó. Aðeins tvö þeirra náðu landi áður en veðurhamurinn náði hámarki. 218 sjómenn eða 42% allra íbúa í Vestmannaeyjum lágu þá í meira en sólarhring á 15 skipum einhverstaðar úti í sortanum í frosti og snjókomu. Í landi biðu feður, mæður, eiginkonur og börn í algerri óvissu um hvort að ástvinir þeirra ættu endurkvæmt. Þrjú skip fórust á þessum klukkutímum og 18 menn drukknuðu eða króknuðu. Ekki þarf mikla innsýn í sálarlíf til að átta sig á hverslags áhrif þetta hefur haft á sjómennina, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt.“

Að endingu segir Elliði að mikið hafi áunnist í öryggismálum sjómanna en þeir vinni hættulegustu störf í heimi þrátt fyrir bættan aðbúnað.

„Þótt tíðin sé blessunarlega önnur bæði hvað varðar öryggi og annan aðbúnað sjómanna þá er ástæða til að minna sjálfan sig á að hlýjan og öryggið sem maður sjálfur nýtur í vinnunni er ekki sjálfgefin. Ekki frekar en þau forréttindi að hitta börnin sín í hádeginu og geta spurt á hverju kvöldi „Ertu búin að læra“.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rósa ósátt: Óboðleg hegðun mótmælenda í gær – „Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?“

Rósa ósátt: Óboðleg hegðun mótmælenda í gær – „Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Við verðum að setja stopp á þennan hælisleitendaiðnað í bili, alla vega nokkur ár meðan við erum sem þjóðfélag að ná okkur, jafna okkur“

„Við verðum að setja stopp á þennan hælisleitendaiðnað í bili, alla vega nokkur ár meðan við erum sem þjóðfélag að ná okkur, jafna okkur“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þannig fékk Guðmundur í Brim viðurnefnið

Þannig fékk Guðmundur í Brim viðurnefnið
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reyndur flugstjóri segir að þetta smáatriði gefi til kynna hvað fór úrskeiðis

Reyndur flugstjóri segir að þetta smáatriði gefi til kynna hvað fór úrskeiðis