Kvennalið Fylkis hefur fengið liðsstyrk en Margrét Björg Ástvaldsdóttir er komin aftur til liðs við félagið.
Margrét sem er fædd árið 1994 kom upphaflega til Fylkis árið 2010 og byrjaði það ár að spila með meistaraflokki félagsins, þá aðeins 16 ára gömul. Síðustu tvö tímabil spilaði hún með Haukum. Margrét hefur spilað 95 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 12 mörk. Hún spilaði 4 leiki með U-19 ára landsliði Íslands á sínum tíma. Margrét spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið á þessu ári um helgina, þar sem hún gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 4-1 sigri Fylkis á Fjölni í Reykjavíkurmótinu. Samningur Margrétar er út 2019.
Á sama tíma framlengdi markmaðurinn Þórdís Edda Hjartardóttir samning sinn. Hún er núna samningsbundinn út tímabilið 2019. Þórdís sem er fædd árið 1991 kom til Fylkis haustið 2016.