fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433

Helgi Kolviðsson: Vitum hvernig Lippi vill spila

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 26. janúar 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær var í fyrsta sinn dregið í nýja keppni landsliða, hina svokölluðu Þjóðadeild. Ísland dróst í riðil 2 í A deild ásamt Belgíu og Sviss. Liðin munu mætast heima og heiman en leikirnir fara fram í september, október og nóvember á þessu ári. Ísland verður að teljast nokkuð heppið með mótherja því liðið hefði getað dregist gegn enn sterkari liðum, þó að mörgum hefði eflaust hugnast betur að mæta „frægari“ þjóðum en ­Belgíu og Sviss. Sagan er þó ekki með Íslendingum því liðið hefur aldrei sigrað Belga eða Svisslendinga í 15 tilraunum og aðeins einu sinni náð jafntefli, gegn Sviss árið 2014. Sá leikur var sögulegur, lokatölur leiksins voru 4-4 eftir að Ísland hafði verið þremur mörkum undir í leiknum.

Hvað er Þjóðadeildin?

Þjóðadeildin er ný af nálinni en keppnin hefur verið í vinnslu í mörg ár. Fyrirkomulagið er nýstárlegt og nokkuð flókið. Til útskýringar þá er öllum landsliðum Evrópu skipt upp í fjórar ­deildir (A, B, C og D), upphaflega eftir styrkleika. Hverri deild er skipt niður í fjóra riðla með þremur eða fjórum þjóðum. Þau mætast innbyrðis heima og heiman og keppast um sigur í sínum riðli. Sú þjóð sem sigrar sinn riðil færist upp um deild en neðsta liðið fellur um deild. Sigurvegarar riðlanna í A deildinni færast eðlilega ekki upp heldur keppa þær þjóðir innbyrðis um titilinn ­Þjóðadeildarmeistari. Keppnin fer fram á tveggja ára fresti eða eftir hvert stórmót í knattspyrnu.

Tenging við undankeppni EM

Utan þessa fyrirkomulags þá gefur Þjóðadeildin landsliðum einnig færi á að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins (EM). Úr hinni hefðbundnu undankeppni EM, sem heldur áfram að mestu óbreytt, geta 20 lið tryggt sér keppnisrétt í lokakeppninni. Þá standa eftir 4 laus sæti og um þau munu bítast í umspili 16 lið úr Þjóðadeildinni, sigurvegarar allra riðlanna úr deildunum fjórum. Enn flækjast þó málin, því líklega munu margir af sigurvegurum riðlanna þegar hafa tryggt sér þátttökurétt í lokakeppninni með frammistöðu sinni í undankeppni EM. Þá er reglan sú að næsta lið þar á eftir í riðlinum sem ekki hefur tryggt sér sæti í lokakeppninni fái sæti í umspilinu.

Nánast öruggt að Ísland komist að minnsta kosti í umspil um EM

Möguleikar Íslands á að komast í lokakeppni EM eru því ­tvíþættir. Annars vegar samkvæmt hinni hefðbundnu leið, með góðum árangri í undankeppni EM. Líkurnar á því verða að teljast nokkuð góðar, bæði hefur liðinu tekist að komast úr undankeppni í síðustu tvö skipti auk þess sem staða liðsins á heimslistanum ­eykur líkurnar á að dragast í auðveldari riðil í undankeppninni. Ef Íslandi myndi hins vegar mistakast að tryggja sæti sitt þar er nánast öruggt að liðið fengi tækifæri til að taka þátt í umspili um laust sæti vegna Þjóðadeildarinnar. Þó að andstæðingar Íslands í Þjóðadeildinni séu sterkir og líklegri en Ísland að sigra riðilinn þá er jafnframt mjög líklegt að þær þjóðir nái að tryggja sér sinn farseðil í lokakeppni EM í gegnum undankeppnina. Þannig er líklegt að umspilssætið muni falla í skaut Íslendinga, óháð því hvernig liðinu gengur í Þjóðadeildinni.

Hver er tilgangurinn?

Guðfaðir deildarinnar er Michel Platini, fyrrverandi forseti UEFA, en hugmynd hans var meðal annars að útrýma ­tilgangslausum og óspennandi æfingaleikjum milli landsliða og auka vægi landsleikja. Tilgangurinn er því að búa til fleiri alvöru landsleiki ­fyrir lið um alla Evrópu en oft hefur verið kvartað yfir að ­æfingaleikir landsliða séu tilgangslausir og óspennandi. Þá hefur verið bent á að leikmenn mæti oft með ­hálfum hug í slíka leiki, meðal annars hræddir um að meiðast, og að félagslið landsliðsmannanna beiti af sömu ástæðum ýmsum brögðum til að koma í veg fyrir að landsliðsmenn mæti í æfingaleiki. Með tilkomu Þjóðadeildarinnar munu landsleikir því bæði skipta meira máli og auk þess munu þar alla jafna mætast landslið af svipaðri getu, sem ætti að gera leikina skemmtilegri og meira spennandi. Má að mörgu leyti líkja fyrirkomulaginu við skiptingu liða í yngri flokkum hér á landi, þar sem hvert félag sendir til dæmis A, B og C lið til leiks þegar farið er á mót. Þá gefur fyrirkomulag Þjóðadeildarinnar varðandi umspilssæti slakari þjóðum meiri möguleika á að komast inn á stórmót.

Endalok æfingaleikja ­landsliða?

Það er þó ekki svo að með ­tilkomu Þjóðadeildarinnar heyri æfinga­leikir landsliða sögunni til, það mun áfram verða gert ráð ­fyrir slíkum leikjum, þó þeim fækki verulega. Áfram verða gluggar ­fyrir æfingaleiki í aðdraganda stórmóta en Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) telur þó ekki að álagið á leikmenn aukist við þessar breytingar. UEFA hefur bent á að hið nýja fyrirkomulag muni fremur draga úr álagi og ferðalögum, það muni verða færri tilefni til að ferðast utan Evrópu þegar æfingaleikir fara fram, ferðalögin verði styttri og leikmenn komi fyrr aftur til baka til sinna félagsliða.

Þjóðadeildin verður sýnd á Stöð2 Sport þar sem hægt verður að sjá alla leiki Íslands, heima og heiman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta