fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433

Stuðningsmaður Kosóvó: Íslenskir stuðningsmenn eru frábærir

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. febrúar 2017 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítil stemning er í þjóðfélaginu fyrir Samfylkingunni. Margir hafa haft á orði að það eina sem geti bjargað flokknum frá því að mást út af hinu pólitíska korti sé róttæk endurnýjun á forystusveitinni. Tilraun til endurnýjunar var gerð um síðustu helgi þegar Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, var kjör­in vara­formaður flokks­ins. Hún er eiginkona Hrannars Arnarssonar, fyrrverandi aðstoðarmanns Jóhönnu Sigurðardóttur. Það vakti nokkra athygli og taldist til tíðinda þegar Jóhanna lýsti yfir stuðningi við Heiðu Björgu í prófkjörsslag Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2014. Segja má að með kjöri Heiðu Bjargar í varaformannsembætti flokksins sé Jóhönnu-armurinn aftur kominn til vissra áhrifa í flokknum. Ekki er þetta sú róttæka uppstokkun sem ýmsir Samfylkingarmenn telja brýna þörf á. Reyndar er stemningarleysið innan Samfylkingarinnar svo mikið að enginn annar en Heiða Björg sýndi áhuga á varaformannsembættinu. Hún var því sjálfkjörin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“