fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433

Helgi Kolviðsson: Vitum hvernig Lippi vill spila

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 15. október 2017 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum breytist lífið með ógnarhraða og stundum hægt. Breytingarnar geta verið kærkomnar og stundum þolum við þær ekki. Verst þykir mér þegar hefðirnar henta ekki raunveruleikanum lengur og hlutirnir eru gerðir með einhverjum óheppilegum hætti „… af því svona hefur þetta alltaf verið.“

Þetta er samt önnur pæling sem ég ætla að fara betur í seinna.

Síðustu árin hefur internetið breytt tilveru okkar hraðar en við höfum í sjálfu sér náð að gera okkur grein fyrir. Margir treysta allt of mikið á netið. Halda meira að segja að umræður geti farið fram á netinu með uppbyggilegum hætti. Reynslan hefur gert mig algjörlega ósammála þessu. Kommentakerfi og svokölluð samtöl á netinu eru mögulega versti samskiptamáti sem hægt er að hugsa sér.

Tjáning, eða miðlun skilaboða, getur aldrei verið til fyrirmyndar þegar samskiptin fara fram í örstuttum setningum sem eru gjarna pikkaðar af mikilli hvatvísi á lyklaborð.

Ef tjáskipti eiga að vera góð þá duga ekki bara orðin til. Það er svo margt annað sem skiptir máli í samskiptum. Til dæmis raddblærinn, svipbrigðin, látbragðið, meira að segja andardráttur getur sagt til um hvort manneskjan sem þú ert að tala við er afslöppuð eða ekki. Kaldhæðin eða ekki.

Bestu samskiptin eiga sér stað þegar fólk kemur saman. Næstbestu samskiptin eru mögulega símtal þar sem hægt er að hafa manneskjuna í mynd líka, Facetime, eða þess háttar. Þriðji besti valkosturinn er líklegast símtalið og síðast á listanum eru svo þessi innpikkuðu skeyti, hvort sem er á Messenger eða í sms-um.

Athugaðu að nú er ég að tala um samskipti milli tveggja eða fleiri einstaklinga, ekki tjáningu einnar manneskju sem fer skriflega fram í status, bréfi eða pistli sem þessum.

Manneskjur eru eins ólíkar og þær eru margar. Við erum misjafnlega skrúfuð saman og stundum sjáum við lífið með alveg afskaplega ólíkum hætti. Til að forðast misskilning og koma skilaboðum frá sér á sem allra bestan máta er mjög nauðsynlegt að fólk hittist og tali saman.

Það er líka nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma til að hlusta. Og spyrja, ef maður er ekki viss um að hafa skilið viðmælanda sinn rétt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Í gær

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Í gær

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn