

Svala Björgvinsdóttir á vinsælasta lagið á YouTube af þeim sem keppa á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar á laugardaginn. Þetta leiðir athugun DV í ljós. Alls hafa lögin sjö sem keppa á laugardag fengið ríflega 248 þúsund áhorf, þar af hefur lag Svölu fengið samtals 89 þúsund áhorf á íslensku og ensku útgáfuna. Þar á eftir kemur lag Arons Hannesar, Nótt/Tonight, með 44 þúsund áhorf.