fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. mars 2026 15:30

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mexíkó hefur kynnt umfangsmikla öryggisáætlun fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í sumar þar sem nærri 100.000 öryggisstarfsmenn verða sendir til að tryggja öryggi stuðningsmanna og þátttakenda.

Mexíkó er einn af gestgjöfum mótsins ásamt Bandaríkjunum og Kanada. Leikir í landinu fara fram í þremur borgum: Guadalajara, Mexíkóborg og Monterrey, þegar mótið stendur yfir frá 11. júní til 19. júlí.

Áætlunin kemur í kjölfar aukins ofbeldis tengdu eiturlyfjahringjum í landinu. Sérstaklega hefur verið ókyrrt í Jalisco-héraði, þar sem glæpasamtökin Jalisco New Generation hafa átt í skotbardögum við her landsins eftir að leiðtogi þeirra, Nemesio Oseguera Cervantes, þekktur sem „El Mencho“ – var felldur í hernaðaraðgerð.

Mexíkósk stjórnvöld og Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, segja þó að átökin muni ekki hafa áhrif á mótið.

Öryggisáætlunin, sem kallast „Plan Kukulkan“, felur í sér að rúmlega 99.000 lögreglumenn, hermenn og aðrir öryggisstarfsmenn verði á vakt á leikvöngum og vinsælum ferðamannastöðum á meðan Heimsmeistaramótið stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum