
Gervigreind hefur spáð fyrir um næstu 15 sigurvegara Meistaradeildarinnar, allt til ársins 2040.
Samkvæmt spánni vinnur Real Madrid keppnina á þessu tímabili og tryggir sér þannig sinn 16. titil.
Næstu ár spáir gervigreindin sigri Manchester City (2027), Bayern Munchen (2028) og Paris Saint-Germain (2029).
Barcelona er spáð sigri árið 2031. Síðar á listanum eru einnig Arsenal (2033), Liverpool (2035) og Chelsea (2037).
Áhugaverðari niðurstöður koma undir lok listans. Inter er spáð sigri árið 2038, sem yrði fyrsti titill félagsins í keppninni í tæp 30 ár.
Það óvæntasta er þó að Newcastle vinni keppnina árið 2040 og verði Evrópumeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Að öðru leyti eru spárnar fremur hefðbundnar, þar sem stærstu lið Evrópu halda áfram að ráða ríkjum í keppninni næstu árin.