fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Jóhann Berg riftir samningi sínum í Abú Dabí – Spenntur fyrir næstu áskorun

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 18:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Berg Guðmundsson hefur rift samningi sínum við Al Dhafra FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Liðið er staðsett í Abú Dabí.

Félagið greinir frá því að Jóhann hafi yfirgefið félagið á samfélagsmiðlum.

Jóhann Berg sem er 35 ára gamall samdi við félagið síðasta sumar en hefur nú lokið dvöl sinni þar.

„Spenntur fyrir næstu áskorun;“ skrifar Jóhann í færslu á Instagram en óvíst er hvaða skref hann tekur nú á ferli sínum.

Flestir félagaskiptagluggar í Evrópu hafa lokað, þó er opið á nokkrum stöðum á Norðurlöndum en einnig í Póllandi, Sviss og Úkraínu svo dæmi séu tekin. Þá eru gluggar opnir í Bandaríkjunum komi slíkt til greina fyrir Jóhann.

Jóhann lék í tíu ár á Englandi, tvö ár með Charlton og átta ár með Burnley áður en hann hélt til Sádí Arabíu sumarið 2024. Þar lék hann í eitt ár áður en hann samdi við Al Dhafra en hefur nú yfirgefið félagið.

Jóhann hefur spilað 101 landsleik fyrir hönd Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð