fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Samtal Guardiola við stjörnu Newcastle í gærkvöldi vekur athygli – Útskýrir hvað þeir ræddu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, útskýrði hvað fór á milli hans og Sandro Tonali eftir að City tryggði sér sæti í úrslitum enska deildabikarsins.

City vann einvígið gegn Newcastle United samanlagt 5-1 og hafði betur 3-1 í síðari leiknum á Etihad-leikvanginum. Eftir leik sást Guardiola ræða við Tonali, sem lagði handlegg um stjórann áður en hann gekk til stuðningsmanna Newcastle.

Samtalið vakti athygli þar sem sögur höfðu verið um mögulegan áhuga Arsenal á ítalska miðjumanninum. Umboðsmaður hans neitaði þó að slíkt hefði komið til tals.

Guardiola sagði að umræðan hefði verið persónuleg. „Ítalskan mín er fullkomin, þannig að ég get talað við hann,“ sagði hann í léttum tón. Hann nefndi sameiginlegan vin þeirra frá Brescia og sagði þá oft ræða föður Tonali og reynslu hans á Ítalíu.

„Hann er afar góður leikmaður og mjög ánægður hjá Newcastle,“ bætti Guardiola við og hrósaði miðjumanninum í hástert.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið