

Ráðning Ruben Amorim sem knattspyrnustjóra Manchester United gæti reynst félaginu afar dýrkeypt, en heildarkostnaðurinn er sagður geta numið allt að 38,6 milljónum punda.
Amorim var rekinn þann 5. janúar eftir aðeins 14 mánuði í starfi, degi eftir 1-1 jafntefli gegn Leeds þar sem hann gagnrýndi stjórn félagsins opinberlega.
United hafði áður greitt um 9,2 milljónir punda til að fá hann frá Sporting í nóvember, en einnig kostaði brottrekstur Erik ten Hag félagið um 13,5 milljónir punda.
Í gögnum sem félagið birti á hlutabréfamarkaði í New York kemur fram að 6,3 milljónir punda hafi verið afskrifaðar vegna ráðningar Amorim og starfsfólks hans, auk þess sem gert er ráð fyrir 15,9 milljóna punda kostnaði til viðbótar.
Þegar allt er tekið saman gæti heildarkostnaðurinn því numið 38,6 milljónum punda. Á þeim tíma stýrði Amorim liðinu í 64 leikjum og vann 24 þeirra.