fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vilja hefja formlega rannsókn vegna nasistakveðju sem átti sér stað í gærkvöldi

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid hefur hafið rannsókn á stuðningsmanni sem er sakaður um að hafa framkvæmt nasistakveðju fyrir leik liðsins gegn Benfica í Meistaradeildinni.

Atvikið átti sér stað á Santiago Bernabéu leikvanginum rétt fyrir leik, þar sem stór borði með skilaboðunum „No To Racism“ var sýndur. Þrátt fyrir það sást einn áhorfandi gera umdeilda handahreyfingu úr stúkunni.

Öryggisverðir á vellinum brugðust hratt við, auðkenndu manninn og fjarlægðu hann úr sæti sínu á leikvanginum sem tekur yfir 80 þúsund manns.

Í yfirlýsingu frá Real Madrid segir að félagið fordæmi slíka hegðun harðlega og muni grípa til aðgerða. „Við fordæmum hvers kyns athafnir sem hvetja til haturs og ofbeldis í íþróttum og samfélaginu,“ segir meðal annars.

Félagið hefur óskað eftir því að aganefnd þess hefji tafarlaust ferli til að vísa stuðningsmanninum úr félaginu til frambúðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð