fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sheik Brendan vekur mikla athygli í Sádí Arabíu eftir þetta myndband sem hann tók þátt í

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Al Qadsiah í Sádi-Arabíu, hefur vakið athygli fyrir þátttöku sína í hátíðarhöldum í landinu.

Rodgers tók við liðinu í desember eftir að hafa látið af störfum hjá Celtic og hefur byrjað afar vel, en lið hans er ósigrað í 13 leikjum undir hans stjórn.

Nú virðist Norður-Írinn einnig vera farinn að aðlagast lífinu utan vallar. Hann tók þátt í sérstöku myndbandi í tilefni af Founding Day, þjóðhátíðardegi sem markar stofnun fyrsta ríkis Sádi-Arabíu.

Í myndbandinu mátti sjá Rodgers klæddan hefðbundnum sádi-arabískum klæðnaði og hélt hann á riffli sem hluta af hátíðarstemningunni. Hann var kynntur sem „Sheikh Brendan“ og sendi landsmönnum hlýjar kveðjur.

„Ég vil færa öllum íbúum Sádi-Arabíu mínar einlægu hamingjuóskir. Landið hefur ríka sögu og mjög spennandi framtíð fram undan,
“ sagði Rodgers í myndbandinu.

Ljóst er að Rodgers er fljótur að aðlagast nýju umhverfi sínu bæði innan og utan vallar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta