fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu atvikið – Átti að reka leikmann Arsenal af velli í leikslok í gær?

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Arsenal misstu stjórn á sér eftir að hafa kastað frá sér 2-0 forystu gegn Wolves og gert 2-2 jafntefli. Mikill hiti færðist í leikinn eftir lokaflautið þegar Gabriel Jesus réðst að varnarmanninum Yerson Mosquera.

Mosquera kastaði sér til jarðar eftir að hafa fengið högg í bringuna og leikmenn beggja liða hlupu strax til. Riccardo Calafiori reyndi að róa liðsfélaga sinn og draga Jesus í burtu, en sjálfur lenti hann í orðaskaki og ýtingum við Mateus Mane.

Adam Armstrong reyndi einnig að komast að Jesus áður en starfsmaður Wolves steig inn í og róaði aðstæður. Þrátt fyrir það héldu rifrildin áfram á víð og dreif um völlinn.

Dómarinn Simon Hooper gaf Jesus gult spjald fyrir atvikið. Þá fóru Calafiori og Mane aftur í hár saman á meðan Piero Hincapie benti reiðilega í átt að leikmönnum Wolves.

Jesus virtist niðurlútur þegar hann var leiddur af velli, á meðan Calafiori var augljóslega æstur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð