fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Telur að nýr stjóri Tottenham geti aldrei labbað frá starfinu með bros á vör

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tim Sherwood, fyrrum leikmaður og knattspyrnustjóri Tottenham, hefur varað Igor Tudor við verkefninu sem hann er að taka að sér hjá félaginu.

Tudor, sem er 47 ára, tók við sem bráðabirgðastjóri Spurs út tímabilið eftir að Thomas Frank lét af störfum. Sherwood telur að Króatinn sé kominn í afar erfiða stöðu þar sem hann hafi litlu að vinna en miklu að tapa.

Tottenham situr í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og aðeins fimm stig skilja liðið frá fallsæti. Sherwood bendir á að ef Tudor nái ekki að rétta gengi liðsins af gæti nafn hans tengst mögulegu falli stórliðs.

Sherwood sagði við Sky Sports. „Þetta verður erfitt, hann þekkir ekki úrvalsdeildina. Fyrir utan peningana, hver er ávinningurinn fyrir hann?“

Hann bætti við að Tudor fengi lítið hrós jafnvel þótt liðið endaði í miðri deild, en áhættan væri mikil. Að hans mati gæti þetta reynst starf þar sem Tudor geti varla unnið, aðeins tapað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið