fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Harry Maguire staddur á Íslandi – Gillz gæti endað einhleypur eftir myndatöku með honum

433
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 09:30

Maguire hitti Gillz.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Maguire leikmaður Manchester United og enska landsliðsins er staddur hér á landi og dvaldi á The Retreat Hotel hjá Bláa lóninu í gær.

The Retreat Hotel er eitt dýrasta hótel landsins en það er lítið mál fyrir Maguire að rífa upp kortið enda þénar hann 35 milljónir á viku hjá United.

Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz var staddur á hótelinu á sama tíma og Maguire og fékk mynd af sér með honum.

Maguire hefur fengið helgarfrí en United er úr leik í enska bikarnum og því engin dagskrá hjá félaginu um helgina.

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn, Gurrý Jónsdóttir, er unnusta Gillz og var með í för. Hún virtist ekkert sérstaklega sátt með sinn mann að áreita Maguire í fríi sínu.

„Egill endar á lausu eftir að hafa ónáðað Harry,“ skrifar Gurrý í færslu á Instagram þar sem hún sést taka mynd af Agli og Maguire saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið