
Christian Pulisic er orðaður við ensku stórliðin Arsenal og Liverpool í ítölskum miðlum.
Hinn 27 ára gamli Pulisic hefur verið hjá AC Milan frá því hann kom þangað frá Chelsea 2023 og ku vera afar sáttur hjá félaginu.
Bandaríski landsliðsmaðurinn er þó sagður hissa á því að Milan hafi ekki rætt við hann um nýjan samning, en sá sem nú er í gildi rennur út eftir næstu leiktíð.
Pulisic gæti því horft í kringum sig, en Arsenal og Liverpool eru sögð horfa til hans í ljósi stöðunnar.