fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ætti að kæra Ruben Amorim fyrir meðferðina í heilt ár

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Lineker hrósaði Kobbie Mainoo í hástert eftir sigur Manchester United á Tottenham og gerði grín að því að miðjumaðurinn ætti jafnvel að íhuga að lögsækja fyrrum stjóra sinn, Ruben Amorim.

Mainoo hefur verið færður aftur inn í byrjunarlið United af bráðabirgðastjóranum Michael Carrick og hefur slegið í gegn. Hann var öflugur í 2-0 sigri á Tottenham og hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína undanfarið.

Getty Images

Lineker ræddi málið í hlaðvarpinu The Rest is Football og sagðist undrandi á því að Mainoo hafi setið á bekknum svo lengi undir stjórn Amorim. „Ef ég væri Kobbie Mainoo og ég segi þetta í gríni, þá myndi ég velta fyrir mér hvort ég ætti að lögsækja hann,“ sagði Lineker.

Hann bætti við. „Hann hefur tekið ár af ferli þessa stráks. Þetta er frábær fótboltamaður. Hann lætur þetta líta út fyrir að vera auðvelt, hann vill boltann, snýr sér undan pressu og tekur réttar ákvarðanir.“

Lineker sagði jafnframt að Amorim hefði verið skaðlegur fyrir þróun leikmannsins og velti fyrir sér landsliðsmöguleikum hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð