

Steven Gerrard segir að það sé þungt högg fyrir stuðningsmenn Liverpool að heyra knattspyrnustjórann Arne Slot gefa í skyn að enski meistaratitillinn á síðasta tímabili hafi að hluta til verið tilkominn vegna þess að liðið féll snemma Meistaradeild Evrópu.
Slot sagði á þriðjudag að mögulega hefði Liverpool notið góðs af því að detta út gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, þar sem liðið hefði þá haft heila viku til að undirbúa sig fyrir hvern deildarleik. „Kannski hjálpaði það okkur,“ sagði Hollendingurinn og bætti við að stærri leikmannahópar væru betur í stakk búnir fyrir álagið sem fylgir mörgum keppnum.
Ummælin féllu þó ekki í kramið hjá stuðningsmönnum Liverpool, sem bentu á að liðið hafi verið með 15 stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar þegar seinni leikurinn gegn PSG fór fram. Gerrard tók undir þá gagnrýni í viðtali við TNT Sports.
„Ég skil vel pirring stuðningsmanna eftir þetta viðtal,“ sagði Gerrard.
„Þeir voru 15 stigum á undan, að mínu mati var deildin í rauninni í höfn þá. Að segja að brottför úr Meistaradeildinni hafi hjálpað er erfitt fyrir stuðningsmennina, sem hafa lagt mikla peninga og ástríðu í að fylgja liðinu í Evrópu.“
Gerrard bætti við að það væri alltaf sárt að detta út úr Meistaradeildinni, bæði fyrir leikmenn og aðdáendur, og því væri skiljanlegt að ummælin veki gremju.