fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gummi Tóta: „Mér fannst það að einhverju leyti ósanngjarnt og vitlaust“

433
Laugardaginn 24. janúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson, atvinnu- og landsliðsmaður til margra ára og nýjasti leikmaður ÍA, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.
Guðmundur gekk í raðir Rosenborg, þá langstærsta lið Noregs, árið 2016 og varð tvöfaldur meistari með liðinu.

„Þetta er rosalegur klúbbur og ég held það séu ekki alveg allir á Íslandi sem fatta að ef þú ferð á útivöll þarna heyrist mun meira í stuðningsmönnum Rosenborgar heldur en stuðningsmönnum heimaliðsins,“ sagði Guðmundur.

Hann stoppaði aðeins eitt tímabil í Rosenborg, en hann segir metnað sinn hafa verið gífurlegan.

video
play-sharp-fill

„Þarna er ég orðinn 23-24 ára og var farið að þyrsta í að fá bara mitt hlutverk, þetta bilaða drive sem maður hefur, ég sætti mig ekki við að vera að spila mjög mikið af mínútum, ég vildi fá lykilhlutverk.

Ég var stundum svolítið erfiður á yngri árum og vildi kannski ekki spila á hægri kanti í þessum leik eða eitthvað og þá fundu þeir fyrir því. Svo gerist það líka að ég kem til baka á undirbúningstímabili og meiðist. Það eru eiginlega einu virkilega erfiðu meiðslin, að togna á liðbandi í hné. Þá voru 4-5 mánuðir sem ég var alveg frá. Þá útskýrðu þeir fyrir mér að þeir myndu fá inn 1-2 leikmenn, þá fannst mér ég ekki hafa þolinmæðina í að koma til baka eftir meiðsli og vinna mig aftur inn, fram fyrir þá aftur. Þannig þeir ýttu mér svolítið í burtu líka.“

Guðmundur fór til Norrköping í Svíþjóð og átti þar þrjú frábær ár.

„Þetta var frábært skref því ég vissi ég gæti tekið lykilhlutverk í Norrköping og mér fannst það að einhverju leyti ósanngjarnt og vitlaust af Rosenborg að gefa mér ekki það hlutverk því ég hafði sýnt það góða takta svo það vantaði meiri festu til að taka næsta skref innan Rosenborg. Það raungerist svo í Norrköping.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
Hide picture