fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Van Dijk baunar yfir blaðamann – Taldi hann ekki bera virðingu fyrir Arne Slot

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirliði Liverpool, Virgil van Dijk, hefur svarað gagnrýni á lið sitt og knattspyrnustjóra félagsins, Arne Slot, og kallaði spurningu eins blaðamanns vanvirðingu. Tilefnið var sú spurning sem Slot fékk eftir leik þar sem hann var spurður hvenær Xabi Alonso myndi taka við starfi hans hjá Liverpool.

Liverpool vann sannfærandi sigur á Marseille á útivelli í Meistaradeildinni á miðvikudag og hefur liðið ekki tapað lengi. Þrátt fyrir það hefur Slot þurft að svara harðri gagnrýni og erfiðum spurningum í fjölmiðlum.

„Þetta var mjög mikil vanvirðing,“ sagði Van Dijk.

„Gagnrýni er hluti af fótboltanum, við vitum það allir, en ég held að þetta sé líka ástæðan fyrir því að hann (blaðamaðurinn) sé ekki hér.“

Van Dijk bætti við að gagnrýni væri eðlilegur hluti starfsins, sérstaklega í ljósi frammistöðu liðsins á síðasta tímabili. Talið er að blaðamaðurinn hafi ekki verið formlega bannaður, en hann hélt sig til hlés eftir leikinn á Stade Vélodrome.

Fyrirliðinn lagði áherslu á að hann styddi Arne Slot heilshugar og sagði hann hafa staðið sig afar vel á krefjandi tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið