fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

United sendir fyrirspurn til Barcelona – Gætu fengið samkeppni frá botnliðinu

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur sent fyrirspurn til Barcelona vegna miðjumannsins Marc Casado, ef marka má spænska miðilinn Mundo Deportivo.

Casado er 22 ára varnarsinnaður miðjumaður sem kom úr La Masia-akademíu Barcelona. Auk United hefur botnlið Wolves í ensku úrvalsdeildinni einnig sett hann á sinn óskalista fyrir sumargluggann ef marka má þessar fréttir.

Áhugi United er hluti af endurnýjun á miðjunni sem fyrirhuguð er sumarið 2026. Félagið er einnig orðað við leikmenn á borð við Adam Wharton, Carlos Baleba, Elliot Anderson og Joao Gomes.

Komi Casado á Old Trafford er því mun líklegra að það yrði í sumar en nú í janúarglugganum.

Cadado hefur spilað 19 leiki fyrir Börsunga í öllum keppnum það sem af er þessari leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð