

Kobbie Mainoo stefnir nú á að vera áfram hjá Manchester United í janúarglugganum eftir að Michael Carrick setti hann í byrjunarliðið.
Hinn 20 ára gamli miðjumaður hafði verið að þrýsta á um lán til Napoli eftir að hafa að mestu setið á varamannabekknum undir stjórn Ruben Amorim. Sú staða breyttist þó um helgina þegar Carrick gaf Mainoo sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu á tímabilinu í Manchester-slagnum á laugardag.
Carrick hefur gert unga landsliðsmann Englands ljóst að hann sé hluti af framtíðaráformum sínum hjá félaginu, svo lengi sem hann haldi uppi góðri frammistöðu. Mainoo skrifaði undir nýjan samning við United á síðasta ári, en hann var aldrei endanlega staðfestur undir stjórn Amorim, sem lét hann aðeins byrja í einum leik á tímabilinu, gegn Grimsby Town í enska deildabikarnum.
Amorim var oft spurður út í lítið hlutverk Mainoo, og í desember vakti athygli þegar bróðir hans, Jordan Mainoo-Hames, mætti á Old Trafford í treyju með áletruninni „Free Kobbie Mainoo“.
Í leiknum gegn Manchester City stillti Carrick, Mainoo upp vinstra megin í þriggja manna miðju ásamt Casemiro og Bruno Fernandes. Það var traustsyfirlýsing til leikmanns sem hafði ekki byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili áður en hann gekk inn á völlinn á Old Trafford.