fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ummæli umboðsmanns Donnarumma um framtíð hans vekja furðu

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Gianluigi Donnarumma, Enzo Raiola, lét út úr sér óvænt ummæli um framtíð ítalska landsliðsmarkvarðarins, þrátt fyrir að hann hafi aðeins verið sex mánuði hjá Manchester City. Raiola viðurkennir að Donnarumma myndi vilja snúa aftur til Ítalíu ef tækifærið býðst.

Donnarumma gekk til liðs við City síðasta sumar frá PSG. Raiola segir þó að þrátt fyrir að skjólstæðingur sinn sé sáttur í Manchester og ánægður með verkefnið undir stjórn Pep Guardiola sé heimþráin aldrei langt undan.

„Hann er að finna ró hjá Manchester City og líkar verkefnið mjög vel. En ef tækifæri til að snúa aftur til Ítalíu kæmi upp þá myndum við taka það,“ sagði Raiola.

Donnarumma er samningsbundinn City til 2030 og þó svo að Juventus og Inter hafi fylgst með leikmanninnum yrði afar flókið fyrir þau að kaupa hann á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð