fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu sturlaða uppákomu í Afríkukeppninni – Þurfti að slást við fjölda manns til að aðstoða liðsfélaga

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 09:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ótrúlegar uppákomur áttu sér stað í úrslitaleik Afríkukeppninnar í gær, þar sem Senegal vann 1-0 sigur á heimamönnum í Marokkó í framlengingu og tryggði sér titilinn.

Leikurinn var afar kaótískur, sérstaklega undir lok venjulegs leiktíma þegar Marokkó fékk umdeilda vítaspyrnu. Leikmenn Senegal gengu þá af velli í mótmælaskyni og liðu alls 24 mínútur áður en leikurinn hófst á ný. Þegar loks kom að vítaspyrnunni steig Brahim Diaz á punktinn, en Edouard Mendy, fyrrverandi markvörður Chelsea, varði slaka Panenka-tilraun Diaz.

Í kjölfarið hafa komið fram myndbönd af furðulegum atvikum rétt fyrir spyrnuna. Varamarkvörður Mendy í markinu, Yehvann Diouf, stóð vörð við markið og passaði handklæði Mendy svo hann gæti haldið áfram að þurrka hanska sína og boltann. Þá réðust nokkrir boltastrákar að Diouf og reyndu ítrekað að rífa handklæðið af honum.

Á einu augnabliki má sjá þegar Diouf er dreginn af vellinum af boltastrákunum. Hefur þetta vakið furðu og reiði margra.

„Þetta er algjör bilun,“ skrifaði einn netverji og annar sagði: „Diouf var hetja kvöldsins.“

Senegal tryggði sér sem fyrr segir sigurinn í framlengingu með marki Pape Gueye og fagnaði sögulegum titli eftir dramatískan leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð