fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Samuel Eto’o fær langt bann og sekt fyrir hegðun sína – Sturlaðist í stúkunni

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti knattspyrnusambands Kamerún, Samuel Eto’o, hefur verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann og sektaður um 15 þúsund pund vegna óásættanlegrar hegðunar í leik Kamerún gegn Marokkó á Afríkukeppni landsliða.

Eto’o, sem er 44 ára, á að baki glæsilegan leikferil með landsliði Kamerún og lék meðal annars með Barcelona og Inter Milan. Hann hefur síðustu fjögur ár gegnt embætti forseta knattspyrnusambands Kamerún.

Í átta liða úrslitum gegn gestgjöfunum í Marokkó síðasta föstudag sást Eto’o missa stjórn á skapi sínu vegna dómaraákvarðana. Hann sat nálægt fulltrúum marokkóska knattspyrnusambandsins og stóð upp, veifandi höndum og látandi í ljós mikla óánægju í þeirra átt í um hálfa mínútu.

Eftir leikinn greindi aga- og siðanefnd Knattspyrnusambands Afríku (CAF) frá því að Eto’o hefði brotið gegn grundvallarreglum um drengskap í íþróttum. Bannið tekur gildi strax og mun Eto’o því ekki mega sinna hlutverki sínu við næstu fjóra landsleiki Kamerún.

Málið hefur vakið töluverða athygli, enda Eto’o einn þekktasti knattspyrnumaður álfunnar á síðari árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta