fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Amorim ætlaði að segja upp hjá United – Eitt símtal breytti hins vegar öllu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Amorim var reiðubúinn að segja af sér þremur dögum áður en hann var rekinn frá Manchester United, ákvörðun sem hefði sparað félaginu um 12 milljónir punda í starfslokagreiðslur.

Samkvæmt heimildum innan Old Trafford var Portúgalinn afar niðurbrotinn eftir harkalegt rifrildi við, Jason Wilcox, föstudaginn fyrir leik United gegn Leeds á Elland Road. Amorim á að hafa sagt vinum sínum að hann hygðist segja starfi sínu lausu.

Hann skipti þó um skoðun eftir samtal við umboðsmann sinn, Raul Costa, sem taldi að félagið ætti annaðhvort að standa með honum eða reka hann. Hefði Amorim sagt af sér sjálfur, er talið líklegt að hann hefði gengið frá borði án nokkurra bóta.

Costa var sannfærður um að endalok þessa erfiða tímabils væru í nánd og að ef ákvörðunin kæmi frá félaginu ætti það að greiða upp samning Amorim, sem áður stýrði Sporting Lissabon.

Á mánudag var Amorim kallaður á fund með Wilcox og framkvæmdarstjóranum Omar Berrada, þar sem honum var sagt upp störfum. Í kjölfarið fær hann starfslokagreiðslur sem nema um 12 milljónum punda, sem hækkar heildarupphæð bóta til rekins knattspyrnustjóra hjá United síðan Sir Alex Ferguson hætti í um 100 milljónir punda.

United hafa síðan ráðið Michael Carrick sem bráðabirgðastjóra. Ole Gunnar Solskjær var einnig tekinn í viðtal, en Carrick heillaði forráðamenn félagsins mest. Carrick hefur þegar hafið störf á Carrington og mun stýra liðinu í Manchester-slagnum gegn City á laugardag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið