fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fullyrt að Carrick taki við á næstu klukkustundum – Verið að smíða teymið í kringum hann

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 12. janúar 2026 16:12

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er við það að tilkynna Michael Carrick sem bráðabirgðastjóra félagsins innan næstu 48 klukkustunda, samkvæmt Daily Mail Sport.

Carrick, fyrrverandi leikmaður United, var staddur í borginni í dag þar sem hann kláraði viðræður um samning sem gerir honum kleift að taka við liðinu út yfirstandandi tímabil, eftir að Ruben Amorim var rekinn úr starfi.

Talið er að viðræður snúist nú að mestu um val á aðstoðarþjálfurum og öðru baklandi Carrick, sem hefur tafið formlega tilkynningu.

Vonast er þó til að Carrick og teymi hans verði komin til starfa fyrir æfingu á miðvikudag, þegar leikmenn United snúa aftur eftir tveggja daga frí.

Bæði Carrick og Ole Gunnar Solskjær áttu í viðræðum við stjórnendur United eftir brottför Amorim, en Carrick ku hafa staðið sig sérstaklega vel í þeim samtölum.

Darren Fletcher hefur stýrt liðinu tímabundið og náð 2-2 jafntefli gegn Burnley, auk þess sem United féll úr FA-bikarnum gegn Brighton & Hove Albion

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið