

Rússneska knattspyrnumanninum Aleksandr Kokorin var eitt sinn boðið 16 klukkutíma kynlífsmaraþon með klámstjörnunni Alina Henessy. Það eina sem Kokorin þurfti að gera var að skora fimm mörk í tíu leikjum.
Rússneska klámyndaleikkonan Alina Yeremenko, sem gengur undir dulnefninu Alina Henessy, bauð Kokorin upp á kynlífsmaraþon með sér. Kokorin var þá leikmaður Dynamo Moskvu, en þetta var árið 2015.
Yeremenko var í viðtali þegar henni voru sýndar myndir af rússneskum knattspyrnummönnum og hún beðin um að gefa þeim útlitseinkunn frá núll upp í tíu. Hún gaf Kokorin fullt hús stiga.
„Ef Aleksandr Kokorin tekst að skora fimm mörk áður en tímabilinu lýkur þá lofa ég 16 klukkutíma kynlífsmaraþoni,“ sagði Yeremenko.
Hann fékk tilboðið í apríl þegar tíu leikir lifðu tímabils en tókst einungis að skora eitt mark í leikjunum og endaði tímabilið með 10 mörk í 39 leikjum.