

Skagamenn heimsækja Stjörnuna í Bestu deild karla á sunnudag en Skagamenn eru með tvö stig eftir fjórar umferðir.
Miklar væntingar eru gerðar á Akranesi eftir að félagið sótti Gísla Eyjólfsson, Guðmund Þórarinsson og Böðvar Böðvarsson fyrir mót.
„Þessir rándýru nýju leikmenn, þeir hafa ekki getað neitt. Ég held að Stjarnan vinni þá,“ sagði Mikael Nikulásson í Þungavigtinni í dag.
Kristján Óli Sigurðsson segir þessa dýru leikmenn ekkert hafa sýnt til þess.
„Mér finnst Skagaliðið, þeir hafa ekki heillað mig. Þessir rándýru leikmenn hvað heldur þú að þeir kosti, Gísli Eyjólfs, Gummi Tóta og Böðvar Böðvarsson. Þetta eru örugglega í kringum 5 milljónir á mánuði.“
„Þeir hafa ekkert komið með neitt að borðinu.“
Mikael telur að Gísli Eyjólfsson verði að fara að stíga upp. „Aron Sig er með 5 mörk og 3 stoðsendingar, Aron Sig vs Gísli Eyjólfs, Gísli á að vera þeirra Aron Sig, það er kannski ástæða fyrir því að Blikar tóku hann ekki. Hann er með eina stoðsendingu.“