fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Allt á suðupunkti í kringum Ronaldo í gær og ásakanir um að brögð séu í tafli – Sjáðu hvað hann gerði í miðju viðtali í öllum hamaganginum

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo skoraði og svaraði stuðningsmönnum andstæðingsins eftir 2-0 sigur Al-Nassr gegn Al-Ahli í sádiarabísku deildinni í gær.

Ronaldo kom Al-Nassr yfir á 76. mínútu áður en Kingsley Coman gulltryggði sigurinn.

Eftir leikinn létu stuðningsmenn Al-Ahli Ronaldo heyra það og bentu til að mynda á að liðið hafi unnið Meistaradeild Asíu, á meðan Ronaldo hefur ekki unnið titil frá því hann kom til Sádí fyrir rúmum þremur árum.

Portúgalinn svaraði þeim svo í viðtali eftir leik. „Ég á fimm Meistaradeildartitla,“ sagði hann brosandi og á þar auðvitað við Meistaradeild Evrópu.

Sigurinn styrkir stöðu Al-Nassr á toppi deildarinnar og er félagið nú á góðri leið með að vinna titilinn loksins.

Merih Demiral, tyrkneskur varnarmaður Al-Ahli, var allt annað en sáttur við dómgæsluna eftir leik og í deildinni almennt.

Á dögunum var fjallað um óánægjuraddir með dómgæsluna í deildinni og voru kenningar á lofti um að það ætti að færa Ronaldo titilinn sem hann hefur aldrei unnið.

„Dómgæslan var galin. Sjáðu fótinn á mér, ég næstum fótbrotnaði,“ sagði Demiral eftir leik.

„Alltaf er reynt að ýta þeim í átt að titlinum, við vinnum án þess að fá neina hjálp,“ sagði hann enn fremur, en Al-Ahli hefur orðið Asíumeistari tvö ár í röð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar