

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.
Gylfi Þór Sigurðsson var frábær fyrir Víking, sér í lagi seinni hluta móts, er liðið vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Sigurbjörn telur að hann gæti átt enn betra tímabil í ár.
„Það var smá hiti í kringum skiptin frá Val og allt það. Nú er hann búinn að vinna sinn titil, sem hann var búinn að bíða eftir í langan tíma.
Hann er kannski ekki pressulaus, en það er samt komið í hús svo hann getur spilað nokkurn veginn með house money,“ sagði Sigurbjörn áður en Jóhann tók til máls.
„Hann fann líka sína stöðu í þessu Víkings-kerfi hjá Sölva. Valdimar fór framar og hann aftar, stýrði uppspilinu og þess háttar. Þetta er stórkostlegt lið,“ sagði hann um Gylfa og Víkingsliðið.
Umræðan er í spilaranum.