fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Eiður Smári telur að krakkar geri alltof lítið af þessu í dag – „Þú þarft ekki félaga með þér, þú getur gert eins og ég“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 08:30

Eiður Smári Guðjohnsen. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiður Smári Guðjohnsen, líklega besti knattspyrnumaður í sögu Íslands, segir vöntun á því í dag að krakkar fari einir út í fótbolta að æfa sig.

Eiður Smári sem ólst sjálfur upp í Belgíu segist hafa fengið fína þjálfun þar en telur að sú staðreynd að hann hafi mikið farið einn út sjálfur hafi skipt mál.

„Ég var mestmegnis bara einn úti í garði, einn og gamli góði veggurinn,“ saðgi Eiður Smári í Dr. Football hlaðvarpinu fyrir helgi.

Gunnar Birgisson, fréttamaður á RÚV og einn dáðasti talsmaður Noregs á Íslandi var glaður að heyra þetta. „Það er gaman að heyra þetta, ég held að þetta skorti í dag. Þetta þarf ekki að heita æfing til að fara út í fótbolta.“

Eiður segir það mikla og góða æfingu að fara einn út í garð að æfa sig. „Þetta er æfing, einn úti í garði að halda á lofti. Þú færð meiri tilfinningu fyrir boltanum, dúndra honum í vegginn og taka hægri og vinstri. Testa sjálfan þig.“

Eiður telur það vanta í dag að krakkar fari út. „Það sem mér finnst vanta mest, jú að krakkarnir séu meira úti. Að þurfa að hafa alltaf einhvern með sér, þú getur æft þér sjálfur. Þú þarft ekki félaga með þér, þú getur gert eins og ég. Þú ímyndar þér vin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð