fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Bodo/Glimt vann í Mílanó og verður í pottinum á föstudag

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 21:56

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ótrúlegt ævintýri norska liðsins Bodo/Glimt í Meistaradeildinni heldur áfram, en liðið sló út Inter í kvöld.

Bodo vann fyrri leikinn heima fyrir 3-1 og mætti á San Siro í kvöld. Liðið stóð af sér sóknir heimamanna í fyrri háfleik og eftir tæpan klukkutíma leik kom Jens Petter Hauge þeim yfir eftir slæm mistök Manuel Akanji.

Hakon Evejen tvöfaldaði forskotið áður en Alessandro Bastoni minnkaði muninn fyrir Inter, en það kom allt of seint. Bodo/Glimt vinnur samanlagt 5-2 og verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit á föstudag.

Newcastle og Bayer Leverkusen voru í góðum málum fyrir kvöldið í kvöld. Fyrrnefnda liðið vann fyrri leikinn gegn Qarabag 6-1 og það síðarnefnda gegn Olympiacos 2-0. Newcastle vann 3-2 í kvöld og Leverkusen og Olympiacos gerðu markalaust jafntefli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð