

Jadon Sancho vakti athygli í París þegar hann sást haldast í hönd við kærustu sína, tónlistarkonuna Saweetie, þar sem parið mætti glæsilegt til leiks í frönsku höfuðborginni.
Þegar þau voru á heimleið um miðja nótt fékk Sancho furðulega spurningu um Kenny Daglish, fyrrum leikmann og stjóra Liverpool.
Sancho, sem er samningsbundinn Manchester United en á láni hjá Aston Villa.
Orðrómur um samband þeirra kviknaði á síðasta ári þegar Saweetie sást á bakgrunnsmynd í síma Sancho. Síðan þá hafa þau verið opinberlega saman og hafa nú sést saman opinberlega.
At 00:20s why has Jadon Sancho been asked…
“DO YOU KNOW KENNY DALGLISH?”😭😭😭 pic.twitter.com/OhS1TLWAGI
— The 44 ⚽️ (@The_Forty_Four) February 17, 2026
Sancho hefur einnig gefið vísbendingar um sambandið með húðflúri. Á síðasta ári lét hann húðflúra orðið „Quiava“ – millinafn Saweetie, sem heitir fullu nafni Diamonte Quiava Valentin Harper, fyrir aftan eyrað. Þá lét hann einnig breyta öðru húðflúri á hendinni.
Saweetie hefur náð miklum árangri í tónlistarheiminum. Lag hennar „Icy Girl“ hefur meðal annars fengið tvöfalda platínuviðurkenningu.
Sancho hefur verið meira í fréttum fyrir lífið utan vallar að undanförnu, en framtíð hans í knattspyrnunni er enn til umræðu eftir misjafnt gengi síðustu ár.