fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Tveir vellir sem á að nota á HM í sumar í tómu veseni – FIFA gæti farið að gera breytingar

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

HM-leikvangur sem á að hýsa annan leik Englands er nú í vandræðum þegar innan við fimm mánuðir eru í að Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefjist. Fyrr hefur verið greint frá vandræðum tengdum leyfismálum á Gillette-leikvanginum fyrir utan Boston, þar sem England á að spila annan leik sinn í riðlakeppninni. Þá eiga fyrstu leikir Skotlands einnig að fara fram þar.

Nú hafa einnig komið upp áhyggjur í Mexíkó vegna Azteca-leikvangsins í Mexíkóborg. Opnunarleikur mótsins milli Mexíkó og Suður-Afríku á að fara fram á þessum sögufræga 88 þúsund manna leikvangi. Endurbætur á vellinum hafa tafist verulega og eigandi hans hefur viðurkennt að ólíklegt sé að öllum framkvæmdum ljúki í tæka tíð.

FIFA tekur yfir alla keppnisvelli í byrjun maí og tíminn er því naumur. Vináttulandsleikur Mexíkó og Portúgals á næsta mánuði er í óvissu. Azteca er sögufrægur HM-völlur, meðal annars þar sem „Hönd-Guðs“ Diego Maradona átti sér stað 1986.

Samhliða þessu stendur yfir deila í Foxborough við Gilette völlinn um kostnað vegna leikjahalds, þar sem borgaryfirvöld krefja FIFA um háar greiðslur fyrir þjónustu og öryggismál. Þetta setur aukinn þrýsting á skipuleggjendur mótsins.

Taldar eru líkur á því að FIFA muni hreinlega færa leik Englands af vellinum en óvíst er hvert hann færi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð