fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Simeone vakti athygli fyrir að hjóla aðeins í Yamal í gærkvöldi

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diego Simeone fagnaði vel og innilega þegar Atlético Madrid burstaði Barcelona 4-0 á heimavelli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins.

Argentínski þjálfarinn vakti athygli þegar hann hélt upp þremur fingrum í átt að hinum 18 ára Lamine Yamal eftir að Ademola Lookman skoraði þriðja markið. Simeone lét ekki þar við sitja heldur hljóp niður hliðarlínuna í mikilli gleði á meðan lið hans keyrði yfir Börsunga í fyrri hálfleik, þar sem öll fjögur mörkin komu.

Sigurinn setur Atlético í afar vænlega stöðu fyrir seinni leikinn og liðið er nú með annan fótinn í úrslitum. Þar bíður annað hvort Real Sociedad eða Athletic Bilbao, nema Barcelona takist að framkvæma kraftaverk á heimavelli í seinni leiknum.

Barcelona taldi sig hafa minnkað muninn þegar Pau Cubarsí skoraði, en markið var dæmt af eftir átta mínútna VAR-skoðun. Seinkunin stafaði af bilun í hálfsjálfvirku rangstöðukerfi vegna mikils fjölda leikmanna í teignum og þurftu dómarar því að draga línur handvirkt.

Antoine Griezmann, Ademola Lookman og Julián Álvarez skoruðu mörk Atlético auk þess sem Eric García varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Kvöldið versnaði enn fyrir García þegar hann fékk beint rautt spjald undir lok leiks fyrir harða tæklingu á Alex Baena.

„Ég held að fólkið okkar þurfi svona kvöld,“ sagði Simeone eftir leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið